Öræfasveit var æði! Á tveim vikum fengum við bara tvo ofsaveðursdaga, aðrir dagar voru bara allt í lagi og trukkafæðið var bara vel ætt! Ég náði t.d. að labba yfir mýrina í hlýrabol einn daginn. Mjög undarlegt.
Núna er ég komin á Höfn aftur og ætla að vera í rúmar tvær vikur. Tek mér þó helgarleyfi næstu helgi til að kíkja á SV-hornið.
Baaaara svona smá pínu frétta-uppdate. Var að spá í að setja inn myndir á picasa en nenni því ekki núna.
mánudagur, júní 29, 2009
föstudagur, júní 12, 2009
Dekurrófa!!
Er í Hornafirðinum. Dvel í Nesjum, en borða á Höfn...og borða... og borða! Erum örugglega best fóðraði fornleifahópur landsins. Humar, bleikja, lambakjöt og bara kjammsí kjamms...allt þetta dekur fer fram á Ósnum á Hótel Höfn og áætla ég að þessi fáeinu kreppukíló sem ég missti í vetur munu láta sjá sig á ný áður en langt um líður.
Við neyðumst til að flytja í Öræfasveitina um helgina þar sem við ætlum að grafa enn á ný á Bæ í tvær vikur. Svo verðum við á einhverju flakki tvist og bast og ég bara hreinlega veit ekki alveg hvar ég á að vera að grafa hverju sinni.
Öræfasveitin var alltaf voðalega fín og sæt, en eftir veðurofsann síðasta sumar er ég pínu smeyk við hana. Svo heillar það mig ekki að flytja úr þessu dekri í trukkafæðið :o/ Það verður spes...
Annars bara, verið hress og þarna...

miðvikudagur, júní 03, 2009
Síðasti pósturinn í svíjaríki í bili...
Tímarnir eru fljótir að líða og ekki á morgun heldur hinn legg ég af stað heim! Flutti frá Västertorp á sunnudaginn alla leið til Farsta þar sem ég dvel í góðu yfirlæti hjá Guggu. Það er búið að vera ansi erfitt síðustu daga að klára öll verkefni áður en við yfirgefum landið, en þetta er að skríða saman. Vonast til að geta klárað flest í kvöld (annað klára ég í sumar) og pakkað í fyrramálið. Þá þarf ég að skila bókum á bókasafnið, prenta út verkefnin og skila, fara í klippingu (ef ég hef tíma), fara aftur heim og græja mig fyrir sommarfest STARK, fara svo og hjálpa til í eldhúsinu á sommarfest...já svo var ég víst búin að lofa Jonathan að detta rækilega í'ða! Fjúff...held að ég fari bara á ýmó.
Svo er það að fara og ná lestinni rúmlega 12 frá centralen. Svo er það bara Reykjavík og svo Selfoss og svo Höbbn í Hobbnafirði...heyrumst betur þá :)

föstudagur, maí 29, 2009
"ég er ekki búin að raka á mér lappirnar svo ég vil ekki bretta upp nærbuxurnar mínar"!
...svona er nú gaman að vera vitlaus útlendingur og tala vitlaust mál...gaman að því :D Hohohoh
Allvega. Síðasta grävölið var í kvöld, vika þangað til ég verð nýkomin til Íslands. Er að pakka! Nákvæmlega eftir viku ætla ég að hafa það svoooo kósí á Holtsgötunni minni með Óskarinum mínum :)
Va'fan de är skönt!!

þriðjudagur, maí 26, 2009
Rétt rúm vika!!
Á föstudaginn í næstu viku (nánar tiltekið þann 5. júní nk) mæti ég á leifsstöð :) Ég er með pínu fiðrildi í maganum. Get ekki beðið eftir að koma heim en það er líka smá stress því það þarf að gera svoooo mikið svo við komum nú íbúðinni í leigu...Óskar er neflilega búinn að sækja um í Lundi. Ætlum að búa í sama landinu næsta vetur ja svei mér þá! Flestar helgar í sumar fara því í húshaldsvesen.
En svo er þetta kannski ekkert mikið og ég kannski að gera úlfalda úr mýflugu, en smá stress sakar engan.
Það gengur vel í uppgrefti. Við Gugga erum samt eiginlega hættar að skipta okkur af þessum uppgrefti þar sem það er alveg feikinóg að gera í fosfatsýnunum.
Ég hef ekki verið bitin af þessum kvikindum hingað til, en mýflugurnar elska mig útaf lífinu. Alltaf notalegt að vera elskuð af einhverjum, enn notalegra ef það klæjaði ekki svona undan elskulegheitunum.
Veðrið leikur við hvern sinn fingur núna og ég ætti í rauninni bara að hanga í einhverjum almenningsgörðum og sóla mig...en ég þarf að klára verkefni og hugsa líka að íslenska sumarið verði svo gott að ég þurfi engar áhyggjur að hafa af sólarleysi...hmmmmm...
Næstu helgi flyt ég svo úr rauðu holunni minni og verð hjá Guggu síðustu næturnar áður en ég kem heim.
Ætla sko beinustu leið í Vesturbæjarlaug þegar ég kem í bæinn! Og fá mér appelsín í gleri :)
ps...Anna í Grænuhlíð eldist vel :)

laugardagur, maí 16, 2009
Með vind í hárinu...
Óskar kom í stutta heimsókn um síðustu helgi :) Það var ógurlega notalegt að fá hann og gerðum við alveg talsvert. Fórum í búðir, fórum á safn, fórum í partý, grilluðum, röltum um og leiddumst...agalega væmið allt saman :) Svo er ég að koma heim eftir 19 daga!! Hlakka bara smá til, en verð samt að ljúka öllum verkefnum fyrst svo ég má ekki hugsa of mikið um þetta.
Er á leiðinni í júrópartý! Búin að fara í bleikar leggings og spreyja vind í hárið svo ég ætti að vera gúd tú gó!
Ég er að vonast til að Portúgal vinni í kvöld...ofsalega krúttlegt atriði þar á ferð. Þeir vinna samt örugglega ekki. Ég ætla ekki að kjósa neitt...ekki einu sinni fósturlandið. Fátækir námsmenn stunda ekki svoleiðis.
Ég var svolítið hissa á að við komumst uppúr undankeppninni en þegar maður heyrir hvað útlendingum (sem hafa ekki hugmynd hver þessi barnastjarna er) finnst um lagið, þá skilur maður pínu vinsældirnar. Held jafnvel að við gætum orðið í 5. - 10. sæti.
Ég leifi henni bara að fara svoooooo miiiiikiiiiið í taugarnar á mér! Og þessi kjóll?!? Hverjum datt í hug að kaupa fullt af bláum borðtuskum í rúmfó og sauma þær saman? Samfestingurinn hennar Selmu var skárri en þetta!

fimmtudagur, maí 07, 2009
Jæja...andinn kom
Í dag var aðeins betra veður svo ég nenni að skrifa eitthvað um þennan uppgröft sem ég er í. En fyrst verð ég bara að sýna ykkur hvað Gugga varð glöð þegar við fundum Serrano:

En þetta er sumsé feltkúrs fyrir master-, magister- og fyrsta árs nema í almennri-, laboratoriv- og beinafornleifafræði. Við gröfum á stað sem heitir Karsvik og er með alls kyns fornleifar. Á svæðinu mínu er verið að grafa í húsgrunni (terrass) sem er ýmist víkingaaldar- eða snemmjárnaldarhús...fer eftir því hvern maður spyr. Svo er verið að grafa á öðrum stað í einhverju sem kallast Platåhus sem er miðaldadæmi og að sögn eins kennarans víkingaaldar baðlaug. Svo er á öðrum stað verið að grafa í einhverju sem ekki er alveg fullkomlega vitað hvað er enn, en að sumra mati er þar bronsaldar cairn (veit ekki ísl. orðið). Á enn öðrum stað...svolítið lengra frá okkur er svo verið að grafa í kringum rúnastein til að athuga með einhverjar mannaathafnir í kringum steininn. Allavega. Við Gugga erum náttúrlega spesjalistarnir af labbinu svo við svörum fyrir allar sýnatökur og eigum að ráðleggja (svolítið óþægilegt en lærdómsríkt) og við höfum verið að taka fosfatsýni í húsgrunninum sem við eigum svo að greina á morgun. Hér eru alltaf tekin fosfatsýni á hverjum meter til að gera karteringu yfir svæðið...þá á maður að sjá sirka hvernig húsið lítur út og hvort einhver dýr hafi verið haldin þar. Við höfum eitthvað fengið að grafa líka en eftir að hafa fundið rautt endurskinsmerki og galvaniseraðan nagla ákváðum við að reyna bara að taka meiri sýni :)
Það er voða undarlegt að grafa svona inní skógi. Ekkert þurfti að aftyrfa...bara raka laufum af terrassinu og klippa runna í burtu. Svo koma mannvistarlögin í ljós rétt undir sverði og maður er stanslaust með garðklippur að klippa rætur...eitthvað nýtt.
Það hefur verið frekar kalt hjá okkur. Í gær hitnaði svo smá en endaði í hagléli...svo að ég hef ekkert nennt neinu á kvöldin. Í dag var hins vegar fínasta veður. Við Gugga fórum e-ð niðrí gám (þar sem við geymun stöffið okkar) að ná í málbönd og pinna og þegar við vorum á leiðinni aftur uppá svæði stóð dádýr fyrir framan okkur! Svona 10 metrum frá. Það er eitthvað nýtt líka. Ég var svo aldeilis hlessa að ég fattaði ekki að draga upp myndavélina, en það lét sig líka hverfa fljótlega. Eins gott því þau eru víst hlaðin TBE smituðum blóðmaurum :o/
Svo var verið að skoða einhvern stóran stein sem grunur lék á að gæti verið kvarnarsteinn í lok dagsins. Þegar honum var velt sat þar risa froskur. Ég ákvað þá að draga upp myndavélina og smella einni af prinsinum:

miðvikudagur, maí 06, 2009
fjúff...
Ég hef alveg helling að segja og gæti bloggað alveg ótrúlega langt blogg, en ég er byrjuð að grafa núna og kvöldin fara í að klára stöff og græja og gera áður en Óskar kemur í heimsókn á föstudaginn. Svo er ég frekar andlaus eftir súrefnisskammtinn á daginn. Fengum haglél og úrhelli seinni partinn í dag og hættum seinna svo við skruppum í Vällingby (sem er hverfi lengst í rassgati) og fengum okkur Serrano!!! Jebb...það er hægt að fá sér ektagóðan Serrano í Stokkhólmi...ljúffengt!
Blogga meira þegar andinn kemur yfir mig.

miðvikudagur, apríl 29, 2009
Hitabeltið...
Fór á Naturhistoriska safnið í dag og sá sýningu sem kallast Rainbow animals. Hún fjallar um rannsóknir á kynhneigð dýra og er alveg svakalega áhugaverð. Mér fannst mest fyndið að lesa um það að vísindamenn hafa markvisst verið að leyna því eða líta framhjá því að dýr heigist til sama kyns, þótt að kynferði og mökunaratferli hafi milljón sinnum verið skoðað. En samkynhneigð finnst í öllum dýrategundum. Það var t.d. fjallað um mávapar sem voru hommar og stálu eggjum frá mávakellingum til að ala upp...mar reddar sér!
Annars ætlaði ég nú að vera löngu búin að blogga og segja frá helginni minni. Fór neflilega í ferðalag með íslensku stúdentunum hérna í Skerjagarðinn og vorum við þar eina nótt í húsi sem KTH á(annar háskóli en minn í Stokkhólmi). Það var ofsa ofsa gaman. Grilluðum og drukkum, kveiktum varðeld og sungum og drukkum smá meira og fórum svo í sánuna...það er ekkert voða sniðugt að drekka mikið áfengi og vera lengi í sánu. Maður þornar mjög mikið upp og timburmennirnir verða alveg agalegir. Það var samt 20°C þegar við komum aftur til Stokkhólms á laugardeginum svo við Gugga fórum niðrí bæ og fengum okkur þynnkumat og settumst svo við Strömmen og sóluðum okkur.
Æðislegur kjördagur!
Fylgdist svo með fyrstu tölum og vaknaði um morguninn og sá síðustu tölur...skemmtilegur tímamunur. Vinstri stjórn ha? Þetta verður spennandi.
Ég skildi ekki alveg þetta sem koma fram að það að samfylkingin fengi svona mikla kosningu þýði að allir vilji fara í EB. Getur einhver útskýrt fyrir mér kostina við að fara í EB? Ég bara sé ekki eina einustu! Vitiði hvað er mikið atvinnuleysi t.d. í EB löndum? Þetta er engin töfralausn eins og fólk talar um. Er bara ekki að fatta af hverju fólk er að eyða tíma í að velta þessu fyrir sér.
En jáh...nóg um pólitík. Fór í bólusetningu í dag. Fór neflilega í vettvangsferð í gær á staðinn sem við eigum að grafa á í maí og var sagt að blóðmaurarnir væru mættir á svæðið og það væri því nauðsynlegt að fara í bólusetningu...WHAT? Þegar ég spurði frekar útí þetta er Stokkhólmssvæðið eitt það hættulegasta í heiminum fyrir sjúkdóm sem kallast TBE (tick borne encephalitis). Ef maður sýkist af honum getur maður fengið heilabólgu og lamast takk fyrir og þetta berst með blóðmaurunum. En ég er búin að fara í sprautuna og fer svo aftur eftir 2 vikur og þá er ég seif. Það fara flestir hérna í bólusetningu en samt greinast um 150 tilfelli á ári af TBE! Svo þótt maður fari í bólusetningu getur maður smitast að öðrum sjúkdómi (borrelia heitir hann) frá þessum kvikindum en hann er hægt að lækna með fúkkalyfjum. Jáh saklausa Skandinavía. Svo eru hérna eitraðir snákar líka! Svona er þetta í hitabeltinu...
...það er einmitt búið að vera um 17°-20°C alla vikuna ;o)

mánudagur, apríl 20, 2009
Liksom...
Ég varð þess heiðurs aðnjótandi að fá að hlusta á samtal sem strákurinn sem sat á móti mér í lestinni átti við kærustuna sína. Hún vildi greinilega að hann flytti inn til sín en honum fannst það ferlega erfið tilhugsun því að hún á barn. Hún lifir líka svo skipulögðu lífi. Vaknar á morgnanna og borðar morgunmat með barninu og fer svo í vinnuna, en hann vill helst bara fá sér samloku og setjast fyrir framan sjónvarpið. Því það virkar faktískt bara fínt. En honum fannst samt gaman að hanga með þessari kærustu sinni og fannst sjálfsagt að þau myndu byrja að búa saman því þau eyða víst öllum stundum saman. En vildi þó tjá hvað honum fannst erfitt að hún ætti barn. Hann endaði allar setningar á orðinu "liksom" sem gerði þetta samtal ennþá áhugaverðara. Fólkið í kring lagði greinilega líka hlustir við því undir lokin voru allir farnir að brosa í kampinn og flissa yfir öllu þessu "liksom". Skemmtilegt.
Fór annars að kjósa í sendiráðinu í hádeginu eins og ábyrgum ríkisborgara sæmir. Kaus rétt svo að þetta vesen á Íslandi ætti að fara að lagast...svo lengi sem þið kjósið líka rétt!
Fór líka í sjúkrþjálfun og lét pína mig svolítið. Henni fannst þó að ég hafði bólgnað svolítið upp eftir síðasta tíma og dró aðeins úr píningunum. Gat þó staðið á öðrum fæti á svampúðanum og kastað bolta í vegg og gripið alveg 35 sinnum (með nokkrum hléum þó), svo þetta er allt að koma. Á að vera í þjálfun í alveg mánuð í viðbót og má ekki fara í miklar fjallgöngur eða stunda hlaup...
...finnst ykkur ekki líklegt?

fimmtudagur, apríl 16, 2009
Sjúkraþjálfari dauðans!
Vorið er komið í Stokkhólmi og ég farin að taka tilheyrandi lyf til að sporna við öllu frjókornamagninu sem byggist núna upp dag frá degi. Það er þó ekki allt orðið grænt ennþá, en það er best að byrja snemma til að byggja upp oðnæmiskerfið (eins og það réttilega heitir).
Ég fór í sjúkraþjálfun í morgun og það gengur bara vel. Get alltaf gengið aðeins lengra í hvert skipti sem ég mæti og er dugleg að gera æfingarnar mínar heima eins og prúðum stúlkum sæmir. Sjúkraþjálfarinn minn er að verða kröfuharðari með tímanum og í morgun hélt ég að hún myndi alveg ganga fram af mér. Hún lét mig fyrst hjóla og svo fara í gegnum sömu æfingar og ég hef verið að gera, nema bætti við meiri þyngd og lét mig gera æfingarnar oftar. Svo bætti hún við nokkrum jafnvægis- og styrktaræfingum og þá kárnaði gamanið nú. Fyrsta æfingin var að standa með löskuðu löppina uppi á einhverjum bolta og beygja hnéð. Boltinn vildi náttúrlega rúlla undan mér og það tók þó nokkuð á að reyna þessa æfingu. Þótt ég væri orðin svolítið þreytt var ég næst látin standa uppá einhverjum kubb og láta mig detta á löskuðu löppina á einhverskonar trampólín og standa á því á einni löpp í flugvélastellingu og reyna að beygja hnéð eins mikið og ég gat. Ég hélt að ég myndi deyja. Var alveg búin á því en sjúkraþjálfarinn sagðist vilja prófa eina æfingu í viðbót. Ég fór bara að hlæja þegar hún sagði mér að standa ofan á svamppúða á löskuðu löppinni, beygja hnéð eins mikið og ég gæti og kasta bolta í vegg og grípa...svona 40-50 sinnum!!!! Undir venjulegum kringumstæðum ætti ég að geta staðið á annari löppinni í 90 gráðum sagði hún. Ég get það ekki einu sinni á heilbrigðri löpp! Kannski heldur hún að ég hafi einu sinni verið heimsmeistari í listhlaupi á skautum og sé bara komin í frekar slæmt form. En þetta er ekkert djók, ég var í alvöru bara að leika mér þarna í Kungsträgården og hef aldrei verið í neitt sérstaklega góðu formi. Ég reyndi nokkrum sinnum, en mistókst jafnoft. Þá leifði hún mér að gera teyjur og fara heim. Bókaði mig svo í tíma hjá sér tvisvar í næstu viku. Ég verð náttúrlega að vera komin í form fyrir næsta heimsmeistaramót.
Núna er ég með stingandi harðsperrur frá vinstri rasskinn niður í vinstri kálfa. Hægri síðan er í fínu lagi...fer létt með'etta!
En þetta er víst nauðsynlegt. Ég er jú að byrja á vettvangsnámskeiði í maí og búin að ráða mig í uppgröft heima í allt sumar og þá er betra að hafa hnéð í lagi. Svo ég ætla bara að látast vera heimsmeistari í listhlaupi á skautum í smá tíma og ganga aðeins fram af mér.
Svona var ég nú einu sinni klár:

laugardagur, apríl 11, 2009
Don't mess with me, I'm an archaeologist!
Er búin að horfa á þættina Bonekickers öðru hvoru í vetur og var núna að klára síðasta þáttinn, þar sem þessi fleyga setning kemur fyrir. Þvílík endemis vitleysa sem þetta er en samt eitthvað undarlega gaman að horfa á þetta. Mæli með að kíkja á surf the channel og horfa á þættina þar. Hvort sem þið eruð fornleifafræðinörd eður ei. Þetta á voðalega lítið skilt við fornleifafræði, en þarna koma þó allar þær stereótýpur sem við eigum að kannast við úr fornleifafræðinni fram...er búin að hlæja mikið yfir þessu, fá kjánahroll oftar en einu sinni og segja "nei heyrðu þetta er nú einum of mikil della" oftar en tíu sinnum! Góð skemmtun þrátt fyrir allt :)
Það er örugglega hitabilgja að ganga yfir Svíþjóð núna. Nema að þetta sé eðlilegt. 18°C í apríl er langt frá því að vera eðlilegt í mínum huga. Ætla alltaf að eyða páskum í Sverige héðan í frá! Fór útí búð áðan á sandölum og stuttermabol og með sólgleraugu og alles! Keypti páskaliljur og fullt af góðum mat til að háma í mig á morgun. Skagenröra, brie, baguette, soðin egg og fleira sem fátæki námsmaðurinn ákvað að láta eftir sér í tilefni páskanna! Ætla svo í mat til vinkonu minnar í kvöld. Borða sænskan páskamat og horfa á sænskar bíómyndir (þó ekki Ingmar Bergman takk fyrir pent!)!
Hér er allt opið alla páskahelgina. Þá helst á morgun að einhverjir hafa lokað en í gær rölti ég um allt og allt virtist vera opið. Enda borgin iðandi af túristum svo að það verður nú að vera e-ð að gera fyrir greyjin. Það er líka kjánalegt finnst mér að láta svona trúarhátíð vera í svona miklu fyrirrúmi í fjöltrúa samfélagi eins og Stokkhólmur er. Það fara ekki alveg allir að grenja þótt Júdas hafi svikið einhvern fyrir milljón árum síðan. Betra að sitja úti á torgum og sötra bjór.

Gleðilega Páska!!!

laugardagur, apríl 04, 2009
Íslensk stjórnmál einkennast af stockholm syndrome
Ég er bara nokkuð sammála honum Bjarna Harðar hér og frekar svekkt yfir því að hann hafi dregið þigframboðið til baka. Ég hef neflilega ekki mikinn áhuga á því að kjósa þessa flokka sem eru búnir að skíta rækilega uppá bak á þing. Verð að finna mér annan kost.
En ég kom til baka frá Halland á fimmtudaginn. Það var ofsalega gaman að komast aðeins útá land og skoða fornleifar og fá smá vor í æðar og tók svo náttúrlega vorið með mér aftur til Stokkhólms. Í dag er 17° hiti og sól!
Við skoðuðum voðalega mikið af grafhaugum og steinsetningum, ýmist frá bronsöld eða víkingaöld og vorum við með alveg sérlegan spesjalista í þeim efnum, Tore Artelius með okkur. Við sáum líka ýmislegt annað eins og varðveitt 17. aldar þorp, virki frá miðöldum og mýrarlíkið Bockstensmannen. Svo gistum við á hosteli í Gautaborg og gátum skoðað hana smá...mjög takmarkað þó.
Hnéð mitt var frekar þreitt á þessu brölti þegar ég kom heim, en ég fór í rehab í gær og fékk ráðleggingar og fleiri æfingar að gera. Þetta tekur náttúrlega tíma að jafna sig, en það hefst!
En ég er búin að setja inn massa mikið af myndum í albúmið "myndir 1". Frá febrúar, mars og svo frá Halland ferðinni. Gjörið svo vel og kíkið!

sunnudagur, mars 29, 2009
Ferðalag...
Fer í ferðalag með skólanum á morgun. Leggjum af stað klukkan 8 og er förinni heitið til Hallands þar sem við ætlum að flakka um í 4 daga og skoða fínar fornleifar. Gistum í Gautaborg og málum bæinn rauðann! Hlakka mikið til. Núna er ég sumsé að pakka og þvo þvott og gera klárt. Segi ferðasögu þegar ég kem til baka!
mánudagur, mars 23, 2009
Sex vikum sídar!
Fór til laeknis ádan, röntgen og skodun og allt leit vel út...jätte bra!
Má hédan í frá ganga um spelku og haekjulaus. Tilfinningin er voda skrítin. Svipad eins og thegar madur hefur sofid illa á handleggnum sínum og aetlar svo ad hreyfa hann daginn eftir. Svipad og thad sinnum 10. En laeknirinn sagdi ad ég yrdi ad losna vid spelkuna og fara ad thjálfa hnéd thví annars yrdi thad eins og stál...thad viljum vid ekki. Svo taldi hann upp nokkra "worst case senario" möguleika sem ég aetta ad sleppa vid ef ég verd dugleg ad aefa hnéd. Svona eins og ad ég muni aldrei fá fulla hreyfigetu í hnéd, muni alltaf vera aum í kringum hnéskelina og ad thetta hné muni alltaf vera til vandraeda í framtídinni. Svo er náttúrlega möguleiki á thvi ad ef thad kemur högg á hnéd á naestu vikum, smallist hnéskelin í spad og thá tharf ad skera...thad viljum vid alls ekki.
En ég er komin med remis á sjukgymnastik svo ad thetta á ad verda allt í thessu fínasta!
Er í skólanum núna...hence the stafsetning. Get ekki bedid eftir ad komast heim og fara í BUXUR!!!